Lið fótboltafélagsins Styrmis varð í 2. sæti á Pan-bikarmótinu í Danmörku nýlega en þar kepptu fótboltalið samkynhneigðra frá ýmsum löndum. Ætlar liðið að taka þátt í einskonar heimsmeistarakeppni fótboltaliða samkynhneigðra sem haldin verður í Lundúnum í ágúst.
Styrmismenn léku til úrslita við lið Svía frá Stokkhólmi. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1:1 og var þá gripið til vítaspyrnukeppni þar sem Svíarnir voru sterkari.