Hinn frægi kynlífsfræðingur Dr. Ruth Westheimer er mætt til landsins í tengslum við Listahátíð í Reykjavík, sem sett var í gærkvöldi. Hún ræddi við Fréttavef Morgunblaðsins um kynlíf og flugeldasýningar.
Á sunnudaginn munu listakonan Marina Abramovic og Dr. Ruth fremja gjörning í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi á milli kl. 10 og 15.
Dr Ruth hefur áður tekið þátt í listrænu samstarfi og þá notaði listamaðurinn flugelda í listaverkinu, skyldu Íslendingar fá flugeldasýningu hjá Dr Ruth?
Kynlífsfræðingurinn frægi mun árita tvær af bókunum sínum í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu Tryggvagötu klukkan 3 í dag.