Tim Montgomery, sem um tíma átti heimsmetið í 100 metra hlaupi, var í dag dæmdur í 46 mánaða fangelsi í New York ríki í Bandaríkjunum fyrir aðild að umfangsmiklu fjársvikamáli þar sem falsaðar ávísanir voru notaðar til að hafa fé út úr fyrirtækjum. Montgomery á einnig yfir höfði sér dóm í fíkniefnamáli í Virginíu.
Montgomery, sem er 33 ára, hafði áður játað sök. Saksóknarar sögðu að hann hefði leyst út falsaðar ávísanir sem hljóðuðu upp á 1,7 milljónir dala. Fyrrum þjálfari og fyrrum umboðsmaður Montgomerys tengjast einnig málinu.
Montgomery hætti keppni árið 2005 eftir að hann var settur í keppnisbann fyrir lyfjaneyslu. Þá voru met hans ógilt. Hann á barn með frjálsíþróttakonunni Marion Jones, sem afplánar nú fangelsisdóm fyrir að segja lögreglu ósatt um fölsunarmálið og eigin lyfjaneyslu.