Breska blaðið Sunday Times veltir því fyrir sér hvernig Eurovisionkeppni myndi líta út ef Evrópuþjóðir sendu „alvöru" listamenn í keppnina en tilefnið er að Sebastian Tellier, sem er virtur tónlistarmaður, flytur framlag Frakka í keppninni í ár.
Þá gætu Bretar sent Amy Winehouse, Írar annaðhvort U2 eða Sinead O'Connor og Íslendingar annaðhvort Sigur Rós eða Björk.