Leikmenn Landsbanka-deildarinnar í knattspyrnu gengu skömmustulegir út úr Smáralindinni á laugardag eftir að 12 ára strákur, Gunnlaugur Birgisson , rassskellti þá í keppni um boltafimi sem Gillette-snyrtivöruframleiðandinn stóð að í Smáralind.
Undankeppni hafði áður farið fram og komust þrír keppendur áfram í úrslit þar sem keppt var við leikmenn úr Landsbankadeildinni, sem og þjóðþekkta einstaklinga á borð við Þorgrím Þráinsson. Gunnlaugur gerði sér lítið fyrir og sigraði alla sína andstæðinga og fékk að launum utanlandsferð fyrir tvo til Barcelona og miða á Nou Camp.