Og meira um Eurobandið því DR, eða Danmarks Radio, notar frekar óbeinar leiðir til þess að koma íslenska laginu inn í undirmeðvitund Dana. This is my Life ómar undir nær allan tímann í sjónvarpsauglýsingu stöðvarinnar fyrir Eurovision-keppnina í ár. Það verður því gaman að sjá hvort þetta færir okkur öll 12 stigin frá frændum okkar. Þeir eru eflaust lítið spenntir fyrir sænskum sigri.