Rússneski keppandinn, stórstirnið Dima Bilan var mjög ánægður með að komast áfram í Evróvisjónkeppninni í gærkvöldi. Á blaðamannafundi eftir keppnina sagðist hann vera í adrenalínrússi því hann hefði haft miklar áhyggjur af að detta á skautasvellinu.
„Þetta eru eins og Ólympíuleikarnir," sagði Bilan og þakkaði öllum viðstöddum fyrir þann mikla kærleika sem hann fann að beindist í sinn garð. „Ég vil bara gleðja ykkur," og „ég skautaði fyrir ykkur,“ voru einnig frasar sem hrundu af vörum Bilan.