Beyonce Knowles er of fræg til að geta farið í kirkju. Í hvert sinn sem hún hefur sótt messu hafa aðdáendur hennar ekki látið hana í friði og því hefur hún tekið þá erfiðu ákvörðun að fara ekki oftar í kirkju.
„Ég hreinlega get ekki lengur farið í kirkju, sem er mjög leitt. Fólk hefur komið til mín í miðri messu í kirkjuni og svo fylgist fólk auðvitað með öllu sem ég geri. Það kemur jafnvel og tekur myndir á símana sína. Þetta fólk er afskaplega kurteist, en ég held að Guð hafi skilning á því þótt ég sæki ekki oftar messu!“ sagði Beyonce við breska tímaritið Look