Mikil spenna ríkir á Dalvík, þaðan sem Friðrik Ómar Eurovisionfari er upprunninn. Þar verðir mikil Eurovisionhátíð í kvöld og verður undankeppnin, sem Ísland tekur þátt í m.a. sýnd beint á skjá í íþróttahúsi bæjarins.
Þá hafa bæjarbúar gert nýtt myndskeið við lag Eurobandsins, This is my Life, og sett á myndskeiðavefinn YouTube. Þar sjást ungir og aldnir Dalvíkingar á sérstakri Eurovisonhvatningarsamkomu í vikunni og sendar eru kveðjur til Serbíu.