Lokaundirbúningurinn fyrir seinni forkeppnina í Beogradska Arena stendur nú yfir og keppendur landanna 19 sem koma fram í kvöld eru væntanlega að róa taugarnar með einum eða öðrum hætti. Frést hefur að Working Title breska kvikmyndafyrirtækið hyggist framleiða grínmynd sem byggi á Evróvisjón.
Workin Title hefur gert myndir á borð við Four Weddings And A funeral, Hot Fuzz, Atonement og fleiri gæðamyndir. Fyrirtækið mun hafa gert samning við aðstandendur keppninnar um að fá að nota umgjörð keppninnar í grínmynd.
Eurobandið hitti keppendur frá Noregi og Finnlandi í garðveislu í gær og er stemmningin eftir lokaæfinguna í Beogradska höllinni bara góð.