Söngkonan Madonna hneykslaði nýlega starfsmenn Carlton hótelsins í Cannes með háleitum kröfum fyrir komu hennar á hótelið.
Madonna krafðist þess að hitastigið á hótelherbergi hennar, sem kostar 150.000 krónur fyrir nóttina, væri haldið í 30 gráðum allan tímann sem hún dvelst þar, og að herbergið væri fyllt ferskum blómum og ilmkertum. Þá krafðist hún þess að krókur yrði hengdur í loftið á herberginu og að tvö líkamsræktartæki yrði sett þar inn fyrir hana og eiginmann hennar, Guy Ritchie.
Madonna er stödd á Cannes kvikmyndahátíðinni til þess að kynna heimildamynd sína „I am because we are", sem fjallar um aðstæður HIV smitaðra barna í Malaví. Madonna ættleiddi yngsta son sinn, David, frá Malaví árið 2006.