Eftir fjölmennan blaðamannafund í Belgrad fór Eurobandið heim á hótel að fagna þessum áfangasigri í Evróvisjón. Þau Regína Ósk og Friðrik Ómar þökkuðu þrotlausri vinnu undanfarna mánuði og einbeittum sigurvilja þennan áfanga.
„Ísland getur unnið Evróvisjón," sagði Friðrik Ómar sigri hrósandi í stuttu spjalli eftir að fyrstu fagnaðarlátunum tók að linna.