Umferð um höfuðborgarsvæðið datt algerlega niður um klukkan sjö í kvöld þegar útsending Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva Eurovision, hófst samkvæmt upplýsingum lögreglu. Örfáir eru á ferli og það hringir ekki sími," sagði lögreglumaður er blaðamaður mbl.is ræddi við. "Það eru bara allir að horfa á sjónvarpið".