* Það kætti fegurðardísina og athafnakonuna Ásdísi Rán að komast í fyrsta sæti yfir mest lesnu bloggara blog.is og ekki skemmdi það fyrir að hún er tiltölulega nýbyrjuð að blogga.
Helst eru það myndir frá heimsókn Ásdísar til Playboy-seturs Hughs Hefners sem virðast hafa vakið forvitni fólks sem og umræður sem áttu sér stað á barnalandi.is en þar var Ásdís Rán gagnrýnd fyrir áhugamál sitt og atvinnu. Segir hún á bloggi sínu að hún hyggist halda upp á áfangann með hvítvíni og kjúklingasalati í 15 stiga hita í Svíþjóð en þangað er Ásdís komin aftur til Garðars Gunnlaugssonar knattspyrnumanns og barns þeirra.