Bob Dylan er væntanlegur til landsins í dag en tónleikar kappans fara fram í nýju Laugardalshöllinni annað kvöld. Dylan virðist samur við sig og hefur meðal annars þvertekið fyrir að ljósmyndir verði teknar af honum í fyrstu lögunum eins og venja er þegar tónlistarmenn leika hér á landi.
Þá mun hann hafa óskað eftir því að yngri gestum yrði stýrt að sviðinu en eldra fólki aftar í salinn. Honum varð þó ekki að ósk sinni að þessu sinni enda liggur það í hlutarins eðli að vonlaust er fyrir skipuleggjendur að verða við slíku.
Með Dylan í för er hljómsveit og tæknifólk, samtals um 25 manns en ráðgert er að hópurinn fari af landi brott strax eftir tónleikana. Á myndinni, sem var tekin á föstudag, má sjá innviði hinnar nýju hallar um það leyti sem tæknifólk og smiðir voru í óðaönn að undirbúa sviðið.