Ummæli frá leikkonunni Sharon Stone þess efnis að slæm meðferð Kínverja á Tíbetbúum og almennt sinnuleysi í mannréttindamálum hafi stuðlað að því að jarðskjálftinn reið yfir landið hafa vakið hörð viðbrögð í landinu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Leikkonan tjáði sig um þetta málefni þegar hún var stödd á kvikmyndahátíðinni í Cannes. „Ég hugsaði með mér, er þetta „karma“. Þegar fólk er vont gerast slæmir hlutir,“ sagði hún í viðtali við kvikmyndatökulið frá Hong Kong. Ng See-Yuen, stjórnarformaður bandalags kvikmyndagerðarmanna í Hong Kong, sagði að ummæli Stone hefðu verið „óviðeigandi.“
Hollywood Reporter