Svo virðist sem vandræðagemsinn Amy Winehouse noti bleyjur. Söngkonan virtist vera í bleyju undir kjólnum sínum þegar hún heimsótti eiginmann sinn, Blake Fielder-Civil, í fangelsi í London sl. mánudag.
Winehouse lét ljósmyndara sem biðu fyrir utan heimili hennar finna fyrir reiði sinni þegar hún snéri aftur eftir að hafa verið meinaður aðgangur í fangelsið þar sem hún mætti of seint.
Parið fagnaði eins árs brúðkaupsafmæli sínu fyrir tveimur vikum síðan og hefði þetta verið þeirra fyrsti fundur þeirra síðan þeim áfanga var náð.