Amiina var nýlega valin í sérstaka ljósmyndasyrpu New York Times er skartaði fimm blómstrandi kvennasveitum. Stelpurnar voru á túr um Evrópu þegar beiðnin kom. Heill hópur af fólki flaug frá Stóra eplinu til London bara til þess að mynda þær. Í honum voru ljósmyndari, stílisti, förðunarfræðingur og aðstoðarmenn þeirra.