Jónsi í Sigur Rós er greinilega að sýsla í meiru en tónlist þessa dagana. Íslenskir aðdáendur hans ráku upp stór augu þegar sást til hans og kærasta hans, Alex, koma út úr Tiger á Laugavegi með svartan ruslapoka fullan af vörum.
Parið, sem hefur staðið fyrir ýmsum listasýningum saman, keypti upp lager verslunarinnar af afar sérstæðum plaströmmum fyrir nýtt verk sem þeir eru að vinna. bös