Tvennum sögum fer af því hvort Angelina Jolie sé orðin léttari. Bandaríski sjónvarpsþátturinn Entertainment Tonight fullyrti að svo væri, en tímaritið People segir að væntanlegir tvíburar Angelinu og Brad Pitt séu ekki enn komnir í heiminn. Það sama fullyrðir umboðsmaður Pitts.
ET hafði ónafngreindan heimildamann, sem sagður var þekkja Angelinu vel, fyrir fregn sinni, en People hafði sína eftir ónafngreindum fulltrúa Angelinu.
Breska tímaritið greindi síðan frá því að tvíburarnir hefðu þegar hlotið nöfnin Isla Marcheline og Amelie Jane.