Kvikmynd, sem tengist sjónvarpsþáttunum vinsælu Beðmálum í borginni, fór beint í efsta sætið á norður-ameríska aðsóknarlistanum um helgina og ýtti Indiana Jones niður í annað sætið.
Tekjur af sýningu Beðmálamyndarinnar námu 55,7 milljónum dala en tekjur af sýningu myndarinnar Indiana Jones og konungsríkis kristalskúpunnar námu 46 milljónum dala. Tekur af Indiana Jones-myndinni námu 101 milljón dala um síðustu helgi.
Hryllingsmyndin The Strangers fór beint í þriðja sætið og í fjórða sætið var ævintýramyndin um Járnmanninn, sem notið hefur mikilla vinsælda síðustu vikur. Í fimmta sæti var barnamyndin The Chronicles of Narnia: Prince Caspian.
Í næstu sætum voru What Happens in Las Vegas, Baby Mama, Speed Racer, Made of Honor og Forgetting Sarah Marshall.