Í nýjasta tölublaði US Weekly sem kom út í gær er heilsíðu mynd af bandaríska leikaranum Jake Gyllenhaal þar sem hann klæðist svörtum Glym öndunarjakka frá 66°Norður.
Jake er ekki eina stjarnan sem líkar vel við fatnað 66°Norður en eins og alþjóð veit þá eru til að mynda Quentin Tarantino og Eli Roth miklir aðdáendur 66°Norður auk þess sem Scarlett Johanssen og fleiri hafa sést klæðast fatnaði frá fyrirtækinu við ýmis tækifæri.