Bandaríska leikkonan Rosanna Arquette hefur bæst í hóp þeirra sem munu leika í kvikmynd Baltasars Kormáks, Run For Her Life, en tökur á myndinni hefjast í Bandaríkjunum eftir viku. Arquette er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í mynd Quentins Tarantinos, Pulp Fiction.
„Hún verður í nokkuð góðu „cameo-hlutverki“ þannig að þetta er mjög stórt hlutverk og mikilvægur hlekkur, þótt hún sé kannski ekki í aðalhlutverkinu,“ segir Baltasar.