Athafnakonan og fegurðardísin Ásdís Rán Gunnarsdóttir auglýsir umboðsskrifstofu sína IceModels til sölu á bloggvef sínum (www.asdisran.blog.is). Segist hún illa geta sinnt fyrirtækinu þar sem hún sé búsett í Svíþjóð.
Fyrirtækið ætti ekki að vera lengi í sölu enda fylgja því umboð fyrir Miss Hawaiian Tropic, Queen of the world, Face of The Universe, Miss Queen International, Miss Tourism Queen of the world, ManHunt Int., Model of the year Int., Miss Global beauty, Miss Leisure, Planet Beach og Miss Bikini International.