Barack Obama, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum, er meðal tíu „best klæddu manna í heiminum,“ samkvæmt nýbirtum lista tímaritsins Esquire.
Einnig eru á listanum leikarinn Christian Bale og meintur fyrrverandi kærasti Cameron Diaz, David Mayer de Rotschild, og breski sjónvarpsmaðurinn Jeremy Paxman.
Tískuritstjóri Esquire, Catherine Hayward, segir: „Valdamiklir menn vita hvernig þeir eiga að klæðast, og halda sig oft við einkennisklæði. Hver og einn á listanum okkar hefur spunnið með ögrandi hætti út frá hefbundnu sniði og þannig skapað sér algjörlega sitt eigið útlit.“