Mark Wahlberg vill að Beckhamhjónin verði á brott frá Los Angeles. Segir hann að í sínu hverfi fylgi þeim mikið ónæði vegna þeirra stanslausu athygli sem þau veki.
Wahlberg er brjálaður út í ljósmyndarana sem nota garðinn hjá honum til að reyna að komast í færi við Davíð og Viktoríu sem búa rétt hjá.
Þegar Wahlberg var spurður hvort hann hefði séð hjónin svaraði hann í léttum dúr: „Nei, en mannskrattinn á heima stutt frá mér og hann verður að fara heim til Bretlands aftur því að papparassarnir eru um allt hjá mér útaf honum!“
Hann bætti við: „Ég var í Bretlandi í síðustu viku og þeir vilja ekki fá hann aftur. Þeir sögðu: Hafið hann endilega hjá ykkur!“