Meðal þess sem Playboykóngurinn Hugh Hefner fékk í afmælisgjöf er hann varð 82 ára var súkkulaðikaka í laginu eins og rassinn á einni af kærustunum hans. Kakan var úr hvítu súkkulaði og með brúnan „krossfisk“ í miðjunni.
Hefner býr með þrem kærustum, og sagði ein þeirra, Kendra Wilkinson, að þær hafi hver og ein fært honum eftirmyndir af líkamshlutum úr súkkulaði, og hann hafi borðað allt með bestu lyst.
„Ég bjó til rassinn á mér til að ég gæti kallað það „súkkulaðikrossfisk“,“ sagði Wilkinson, sem býr með Hefner í Playboysetrinu ásamt hinum ástkonum hans tveim, Holly Madison og Bridget Marquardt.