Pitt heldur Martin við efnið

Gwyneth Paltrow var trúlofuð Brad Pitt í tvö ár.
Gwyneth Paltrow var trúlofuð Brad Pitt í tvö ár. Reuters

Chris Martin, söngvari hljómsveitarinnar Coldplay, segir alls ekki auðvelt að vera kvæntur fyrrum unnustu Brad Pitt, eins eftirsóttasta manns heims. „Mér fannst alltaf að það hlyti að  vera frábært að vera með valdamikilli konu þar sem það myndi halda manni vakandi,” segir hann.

„Að vera kvæntur áhrifamikilli konu sem á velgengni að fagna geri það að verkum að maður vill stöðugt vera að bæta sig. Maður verður að hafa þann metnað. Hafi kona manns verið með Brad Pitt, hlýtur maður stöðugt að vilja bæta sig, þú skilur hvað ég á við.” 

Martin greinir einnig frá því í viðtali við tímaritið Rolling Stone að hann taki gjarnan svefntöflur og að það komi fyrir að hann semji tónlist undir áhrifum þeirra á nóttunni sem hann kannist svo varla við að morgni. 

Martin er kvæntur bandarísku leikkonunni Gwyneth Paltrow, sem um tíma var trúlofuð Pitt og eiga þau tvö börn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir