Slúðurfregnir herma að Reese Witherspoon hafi farið með kærasta sínum Jake Gyllenhaal í jógatíma um helgina. Jógatíminn þykir ekki síst fréttnæmur fyrir þær sakir að hann fór fram aðeins tveimur dögum eftir að gengið var frá skilnaði Reese og fyrrum eiginmanns hennar, Ryan Phillippe. Mun Ryan hafa upplýst við fjölmiðla að þegar skilnaðurinn blasti við hafi hann liðið miklar vítiskvalir, verið í algjöru rusli bæði líkamlega og andlega, og í sjálfsvígshugleiðingum.
Gekk jafnvel svo langt að hann vaknaði með grátstafinn í kverkunum og uppköstum. Ryan mun nú allur hressari, kominn á fast með leikkonunni Abbie Cornish.