Á Egilsstöðum hefur Soffía Mús hreiðrað um sig í í Sláturhúsinu við Kaupvang. Músin er þar á vegum leikhúss frú Normu og segir hún áhorfendum frá tímaflakki sínu og leit að fleiri frístundum.
Höfundur verksins er Sigríður Sigurjónsdóttir en leikararnir eru fjórir, þau Halldóra Malin Pétursdóttir, Pétur Ármannsson, Jón Vigfússon og Guðjón Sigvaldason sem einnig er leikstjóri þess.