Leikkonan Sienna Miller hefur staðfest við fjölmiðla að hún muni leika í kvikmynd sem gera á um Hróa hött. Leikur Miller lafði Marian en Russel Crowe, sem hefur tekið að sér hlutverk fógetans í Skírisskógi, mun væntanlega berjast við Hróa um ástir lafði Marian. Ridley Scott leikstýrir myndinni. Brian Helgeland skrifar handritið.
Miller var alsæl þegar BBC tók hana tali og sagði að ekki væri hægt að fá betri vinnufélaga en Crowe og Scott.