Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston er farin til Bretlands til samfunda við nýjasta kærastann, tónlistarmanninn John Mayer. Aniston lenti á Heathrow flugvelli í Lundúnum í morgun en hann mun koma fram á tónleikum í Birmingham á morgun. Hún mun einnig fylgjast með honum á tónleikum í Hyde Park í Lundúnum á laugardag en þar kemur hann fram ásamt Sheryl Crow og The Police.
Parið var fyrir skömmu í rómantísku fríi í Punta Mita í Mexíkó. -