Kvikmynd Ólafs Jóhannessonar, The Amazing Truth About Queen Raquela hlaut sérstök verðlaun fyrir afreksverk í þágu samtíma kvikmyndagerðar á kvikmyndahátíðinni CinemaCity, í Novi Sad í Serbíu, nú um helgina.
Myndin tók þátt í aðalkeppni hátíðarinnar EXIT point ásamt 12 öðrum myndum frá öllum heimshornum.
Dómnefnd CinemaCity samanstendur af kvikmyndagerðamönnum, framleiðendum, kvikmyndagagnrýnendum og aðstandendum nærliggjandi kvikmyndahátíða.
Queen Raquela hefur samkvæmt fréttatilkynningu frá framleiðandanum hlotið verðlaun og lof gagnrýnenda um allan heim. Nýlega hlaut myndin tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni NewFest í New York þar sem dómnefnd valdi hana bestu alþjóðlegu kvikmyndina og sagði hana vera ,,hreinskilna, hvetjandi, fyndna, sorglega og vongóða, og slær ekki eina feilnótu". Einnig var myndin valin besta kvikmynd hátíðarinnar af dómnefnd sjónvarpsstöðvarinnar Showtime. Áður hampaði hún hin eftirsóttu Teddy-verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Berlín.
The Amazing Truth About Queen Raquela segir frá Raquela, stelpustrák frá Filippseyjum sem dreymir um að flýja til Vesturlanda til að finna draumaprinsinn. Bíóbrot fyrir myndina má sjá á vefsíðu myndarinnar.