Garðar Thor Cortes söng í gær fyrir fjölda manns á tónleikum sem fóru fram á Trafalgar-torgi í Lundúnum. Tónleikarnir voru til styrktar Loomba-sjóðnum, en tilgangur sjóðsins er að aðstoða börn á Indlandi. Forseti sjóðsins er Cherie Blair, eiginkona Tony Blairs, fyrrum forsætisráðherra Bretlands. Áheyrendur létu fara vel um sig á torginu í gær á meðan þeir nutu tónleikanna enda veðrið með eindæmum gott.