Staðhæft er í breskum fjölmiðlum að söngkonan Madonna og eiginmaður hennar breski kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie hafi ákveðið að skilja.
Eru hjónin, sem hafa verið gift í sjö ár, sögð hafa ákveðið að gera þetta opinbert eftir fyrirhugaða tónleikaferð hennar ‘Sticky and Sweet’ sem lýkur í Mexíkó þann 29. nóvember. „Þrátt fyrir að hjónabandinu sé lokið munu þau ekki tjá sig um það fyrr en að tónleikaferðinni lokinni,” segir ónefndur heimildarmaður breska blaðsins Daily Mirror.
„Þau eru eins og systkini fremur en hjón og telja því best að binda enda á hjónabandið. Það hafa verið uppi sögusagnir um hávaðasöm rifrildi en þau hafa einfaldlega fjarlægst hvort annað. Þau hafa komist að þeirri niðurstöðu að betra sé fyrir þau að vera bara vinir. Það er sorglegt en þau eru staðráðin í að skilja í vinsemd.”