Hugh Hefner, eigandi Playboy tímaritsins, þjáist af bakverkum vegna þess að hann eyðir of miklum tíma í að hamast í rúminu með vinkonum sínum. Þetta kom fram í viðtali við Hefner, sem er 82 ára, á Fox sjónvarpsstöðinni. Hefner býr með þremur stúlkum á Playboy setrinu í Los Angeles.
„Ég þjáist af verkjum en ég hef átt við bakvandamál að stríða síðan á níunda áratugnum. Of mikill tími í að hamast í rúminu með vinkonum," sagði Hefner í viðtalinu.
Hefner sagði einnig að það hafi ekki vakið mikla hrifningu í fjölskyldunni þegar hann ákvað að hefja útgáfu á Playboy tímaritinu á sínum tíma. Hann hafi hins vegar haldið sínu striki enda gamall draumur sem varð síðan að veruleika.