Með versnandi ástandi á fjármálamörkuðum í heiminum og rýrnandi bónusgreiðslum eru hnakkarnir svonefndu að hverfa úr tísku, eins og glöggt hefur komið í ljós í París núna um helgina, þar sem sýnd hefur verið vor- og sumartíska næsta árs.
Hönnuðir karlmannafatnaðar kynntu til sögunnar mýkri karlmennskuímynd og höfnuðu „Gordon Gekko“ útlitinu, og á sýningu Emanuel Ungaro var sviðið albleikt í tilefni af árlegri Gleðigöngu í borginni.
„Ég kann alltaf betur við að sjá hnakkakerta menn sem hafa lítið eitt mýkri hlið, vegna þess að fólk er búið að fá yfir sig nóg af hnökkunum,“ sagði svissnesk-kóreski hönnuðurinn Youn Chong Bak.
Til marks um þetta voru hafðar duggarapeysurnar sem gat að líta á mörgum fyrirsætunum.