Hópur apa í Ohama dýragarðinum í Osaka í Japan hefur verið sendur í megrun þar sem einhverjir þeirra voru orðnir svo feitir að þeir gátu varla hreyft sig. Kjörþyngd apanna er 10 kg en þeir vega nú um 30 kg. Er talið að aparnir hafi fitnað vegna þess að gestir í garðinum laumist til þess að gefa þeim.
Hafa aparnir því verið sendir í strangan megrunarkúr og hefur matarskammtur þeirra verið minnkaður um 60%.