Mynd Rúnars Rúnarssonar kvikmyndaleikstjóra, Smáfuglar, var valin besta stuttmyndin á kvikmyndahátíðinni í Edinborg um helgina. Myndin hefur verið á sigurför um stuttmyndahátíðir heimsins frá því hún var frumsýnd í Cannes og er spurning hvort sú sigurganga endi eins og hjá síðustu stuttmynd Rúnars, Síðasta bænum í dalnum, sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna.
Raunar fylgir sigrinum í Edinborg möguleiki á enn stærri verðlaunum, en sigurmyndin er tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.