Hið árlega pylsukappát á Coney Island í New York fer fram í dag, þjóðhátíðardag Bandaríkjanna og í ár er keppnin hörð og er mikið gert úr möguleikum hins sexfalda Takeru Kobayashi í ár.
Það er Nathan's pylsugerð sem styður keppnina sem er nú orðin hluti af hátíðahöldunum í tengslum við þjóðhátíðardaginn í New York.