Tónlistarmaðurinn Noel Gallagher hefur áhyggjur af ástandinu í heimalandinu og bresku þjóðinni. Segir hann að „Skíthælar vopnaðir hnífum séu að taka yfir Bretland."
Gallagher, sem er gítarleikari hljómsveitarinnar Oasis, lét þessi orð falla í Lundúnum í dag þegar Oasis tók við verðlaunum á Silver Clef verðlaunahátíðinni. „Það synd að slíkir skíthælar hafi tekið yfir götur okkar. Það er hræðilegt og það er ekki bara í Lundúnum," segir Gallagher. „Ég og konan mín vorum að tala um það hvernig umhverfi börnin okkar eigi eftir að alast upp í og það er ömurlegt. En ég veit ekki hvað við getum gert."