Búið er að byrgja glugga á sjúkrastofu Angelinu Jolie svo ljósmyndarar nái ekki að taka myndir af leikkonunni sem bíður þess að fæða tvíbura á Lenval sjúkrahúsinu í Nice í Suður-Frakklandi, samkvæmt upplýsingum frá sjúkrahúsinu.
Segja stjórnendur sjúkrahússins að myndir sem hafi birst af þeim Jolie og Brad Pitt í herbergi sínu séu falsaðar þar sem ekki er hægt að taka myndir í gegnum hlífina sem er fyrir gluggunum. Því hljóti myndirnar að vera falsaðar eða af öðrum sjúklingum á sjúkrahúsinu.