Gítarleikari The Rolling Stones, Ronnie Wood, er farinn frá eiginkonunni samkvæmt slúðurvefjum. Á Wood, 61 árs, að hafa tekið saman við átján ára rússneska þjónustustúlku, Ekaterine Ivanova, en þau kynntust þegar hann var út á lífinu.
Samkvæmt slúðurmiðlum dvelur stúlkan hjá Wood á heimili hans í County Kildare á Írlandi og hann hefur kynnt hana sem unnustu sína fyrir vinum.
Breska slúðurblaðið The Sun hefur eftir heimildum að Ekaterine sé heilluð af gítarleikaranum og hann hafi yfirgefið eiginkonuna fyrir hana.
Á stúlkan að hafa hitt eiginkonu Woods, Jo, sem bað hana að taka ekki eiginmanninn frá henni. Þá á Ekaterine að hafa svarað. „Ég er ekki að taka hann. Það er hann sem er að fara."
Talið er að Ronnie hafi hitt Ekaterine á bar í Lundúnum í apríl eftir frumsýningu á heimildamynd Martin Scorsese um Rolling Stones, Shine A Light.