Hljómsveitin Steed Lord er nú á leiðinni í 3 vikna tónleikarferðalag um Bandaríkin. Mun hljómsveitin ferðast um stórt svæði frá Kanada til vesturstrandar Bandaríkjanna en sveitin spilar m.a. spila í Las Vegas og Los Angeles.
Í kjölfarið mun sveitin fara í Evrópuferð og halda tónleika þar fram í lok september.
Steed Lord mun koma fram á Qbar í Reykjavík og kynna nýtt efni. Þessir tónleikar eru hugsaðir sem nokkurskonar fjáröflun fyrir tónleikarferðalagið. Tónleikarnir hefjast með grillveislu kl. 20 en Steed Lord stígur á svið uppúr miðnætti. Miðaverð er 1000 krónur og eru miðar seldir í Qbar.