Ekkert varð af fyrirhuguðum tónleikum Merzedes Club á stærsta dansstað Portúgals, Club Kiss, á laugardaginn.
Ástæðan er sú að ekki var búið að gera klárt fyrir sveitina, en Portúgalar þykja víst ekki með iðnari mönnum að mati innanbúðarmanna. Þess í stað spilar sveitin á miðvikudagskvöldið, en hún hefur fengið mikla athygli þar syðra og baðað sig í ljósmyndaflassi forvitinna.