Sean Penn notaði víst allsérstaka leið til að koma sér í rétta gírinn fyrir erfið hlutverk. Að sögn Gary Oldmans drap Penn í sígarettum á fótleggjum sínum til að auðvelda einbeitingu.
Oldman varð vitni að þessu þegar þeir léku saman í kvikmyndinni State of Grace árið 1990 en Penn er nú töluvert eldri og því væntanlega hættur slíkum bjánaskap.