Einar Bárðarson dregur sig í hlé

Einar Bárðarson, t.h., ásamt Garðari Thór Cortes og Kiri Te …
Einar Bárðarson, t.h., ásamt Garðari Thór Cortes og Kiri Te Kanawa. mbl.is/Kristinn

Einar Bárðarson hefur látið af störfum sem umboðsmaður Garðars Thórs Cortes eftir rúmlega þriggja ára samstarf. Ástæðurnar segir Einar vera margar en það hafi vegið þungt að eiginkona hans, Áslaug Thelma Einarsdóttir, á von á öðru barni þeirra hjóna innan fárra vikna.

„Við verðlaunaafhendingu bresku tónlistarverðlaunanna fannst mér sem vissum áfanga hefði verið náð og ég ákvað í kjölfarið að ljúka við útgáfu seinni plötunnar og draga mig svo í hlé,“ sagði Einar í viðtali við Morgunblaðið í gær. Þá var hann á ferð til móts við nýsjálensku óperusöngkonuna Kiri te Kanawa sem er við laxveiðar í Rangá.

Einar hefur þó ekki alfarið sagt skilið við Garðar Thór því hann mun enn sinna stjórnarstörfum fyrir Believer Music Group sem gefið hefur út báðar plötur Garðars Thórs Cortes.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir