Damien Rice lék á als oddi á Nasa í gærkvöldi og þóttu tónleikar hans magnaðir. Ef til vill hefur einhver gleymt að segja honum frá reykingabanninu á Íslandi því hann kveikti sér í sígarettu og reykti á sviðinu.
Einnig lét hann bera kassa af bjór inn á sviðið í lokalaginu og bauð þeim sem vildu að koma með sér upp á svið og drekka með sér bjór. Gestir fóru því sáttir og léttir heim af tónleikunum. bös