Lögregluþjónn í Peking í Kína er að skapa sjálfum sér frægð með því að læra meira en tólf tungumál í undirbúningi fyrir Ólympíuleikana.
Hinn ameríski hreimur Lui Wenli hefur slegið rækilega í gegn hjá gestum borgarinnar. Enska, franska og þýska eru þau tungumál sem Lui Wenli hefur náð bestu valdi á en hann getur einnig heilsað á hollensku, finnsku, pólsku og mörgum öðrum tungumálum.