Fjöldi manns var saman kominn á Borgarfirði eystri um helgina, á Bræðslunni, að hlýða á lifandi tónlist og njóta samvista við vini og vandamenn. Meðal þeirra, sem komu fram á tónleikum þar voru Dísa, Magni, Eivör Pálsdóttir, Amy Kuney og Damien Rice.